Costa Blanca Norður, Marina Alta, Jávea
REF 5766148
Sérstakur íbúðakjarni, rúmlega 1 km frá ströndinni í Jávea, á norðurströnd Costa Blanca. Jávea er talinn einn mikilvægasti ferðamannastaðurinn við Miðjarðarhafsströndina og býður upp á alla þjónustu og þægindi stórborgar, eins og stórar matvörubúðir, skóla, sjúkrahús og heilsugæslustöðvar, auk fjölbreyttrar afþreyingar og fjölda veitingastaða. Svæðið er tilvalið fyrir útivistarfólk, golfvöllur er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð, fallegar gönguleiðir og fjölmargar vatnaíþróttir á stórkostlegum ströndum og víkum. Gott vegakerfið tengir svæðið við önnur ferðamannasvæði á Costa Blanca, eins og Denia á 25 mínútum, Calpe á 40 mínútum eða Benidorm á 45 mínútum. Alicante alþjóðaflugvöllurinn er í rúmlega klukkutíma akstursfjarlægð frá kjarnanum.
Í verkefninu eru íbúðir með 2 og 3 svefnherbergjum, fáanlegar í ýmsum gerðum: jarðhæð og miðhæð með verönd og þakíbúðir á tveimur hæðum með verönd. Allar íbúðirnar eru með opinni stofu sem sameinar eldhús, borðstofu og setustofu í einu opnu rými með stórum gluggum sem opnast út á verönd. Hjónaherbergið er með sérbaðherbergi og, í sumum íbúðunum er einnig aðgangur að verönd. Sumar þakíbúðirnar njóta einnig sjávarútsýnis.
Íbúðirnar eru með loftræstikerfi (heitt/kalt), fullbúið baðherbergi, lýsingu og rafmagnstengi á veröndum, geymslu og bílastæði. Það fer eftir byggingarstigi, en það er hægt að velja lit og efni á innrétttingar. Það er líka mögulegt, gegn aukakostnaði, að fá ýmsar auka uppfærslur, eins og að setja upp einkasundlaug á verönd sumra þakíbúðanna.
Kjarninn inniheldur mörg sameingarsvæði þar sem hægt er að njóta Miðjarðarhafsloftslagsins, þar á meðal stóra sundlaug og slökunarsvæði, salerni, stóra garða, göngustíga, líkamsræktarstöð, samfélagsherbergi og stæði fyrir hjól. Kjarninn er fullkomlega aðgengilegur fyrir hreyfihamlaða og með skábrautum fyrir hreyfihamlaða.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Jávea
Jávea er eitt af afmörkuðustu svæðunum við norður Costa Blanca. Fegurð landsins felst í fullkomnu jafnvægi hafs og fjalla, sem hefur orðið til þess að staðurinn er einn sá eftirsóttasti á meðal efnaðra kaupenda.
Þjónustustig og fasteignaframboð í Jávea er einstaklega gott. Einbýlin sem hafa stórkostlegt sjávarútsýni eru meðal eftirsóttari fasteigna á svæðinu, þó einnig megi finna hér gott úrval íbúða og raðhúsa í þéttbýli. Skoðið fasteignirnar við ströndina í Jávea
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum