Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Elche, Arenales del Sol
Þessi eign er ekki í boði
REF 2296743
Íbúðir, aðeins 500 m frá ströndinni í Arenales del Sol, frábærum stað við suður Costa Blanca. Stutt er að aka til verslanamiðstöðvar sem býður upp á daglegar nauðsynjar, svo sem matvörubúð, apótek, bari og veitingastaði. Gran Alacant, þar sem enn meira úrval þjónustuaðila má finna, er í 10 mínútna akstursfjarlægð og stórborgin Alicante í 20 mínútna akstursfjarlægð. Kjarninn býður uppá íbúðir með 2 svefnherbergjum og 1-2 baðherbergjum, 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, og þakíbúðir með 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og þakverönd. Allar íbúðirnar njóta rúmgóðrar opinnar stofu, eldhúss og borðstofu, og hafa stóra verönd. Eignirnar eru klárar fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun og þeim fylgir bílastæði og geymsla í bílakjallara. Á sameiginlegu svæði er stór sundlaug með aðskildum svæðum, fyrir fullorðna og börn, nuddpottur, garðar og leiksvæði fyrir börnin. Þá er sem fyrr segir bílakjallari í kjarnanum.
Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Elche, Arenales del Sol
Íbúðabyggðin við Arenales del Sol og aðliggjandi strönd hefur til margra ára verið eftirsóttur áfangastaður spænskra ferðalanga.
Ströndin við Arenales del Sol er um einn og hálfur km. að lengd, og því ein af þeim lengri við Costa Blanca. Við sjóinn rísa háar byggingar með stórkostlegu útsýni sem umkringdar eru margskonar þjónustu. Stór hluti fasteignaúrvalsins í Arenales del Sol samanstendur af tveggja og þriggja svefnherbergja íbúðum í innan við 300 m. fjarlægð frá ströndinni. Þessar fasteignir eru mjög eftirsóttar af þeim sem kjósa að njóta frítímans við ströndina. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Arenales del Sol.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum