Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Þessi eign er ekki í boði
REF 4641548
Frábært einbýli á einni hæð auk sólstofu í Benjiófar, Costa Blanca Sur. Á svæðinu er að finna alla mögulega þjónustu frá degi til dags, eins og verslunarkjarna með stórum matvöruverslunum og vinsælum veitingastaðakeðjum. Nálægasta borgin er Cuidad Quesada með allskonar þjónustu og skemmtun, golfvelli, vatnagarða, verslunarkjarna og mikið úrval spænskra og alþjóðlegra veitingastaða. Dásamlegar strendurnar í Guardamar og Torrevieja eru í aðeins 10-15 mínútna akstursfjarlægð. Þorpið er umkringt appelsínu- og sítrónuökrum, með útsýni að Sierra de Orihuela, þetta er staðurinn fyrir fólk sem vill vera nálægt náttúrunni án þess þó að sleppa tökunum af þægindum borgarlífsins. Tvær hraðbrautir tengja borgina við flugvellina í Murcia og Alicante, sem eru innan við klukkutímafjarlægð.
Glæsilegt einbýli sem hægt er að flytja strax í, á einni hæð auk sólstofu, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Frumleg hönnun býður upp á að aðskilja borðstofu og stofu með eldhúsið í hjarta hússins. Úr stofunni er útgengt út í garð með einkasundlaug. Öll herbergin eru með innbyggðum skápum og eitt svefnherbergi er með sérbaðherbergi og fataherbergi. Úr 105m2 sólsofunni er stórkostlegt útsýni, fullkominn staður til að njóta þess að borða úti með fjölskyldu og vinum.
Með húsinu fylgja heimilistæki, loftræsting um stokk, sumareldhús í sólstofunni, einkasundlaug og bílastæði innan lóðar.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Fasteignaúrvalið í Benijófar er mjög fjölbreytt, nægir þar að nefna úrval einbýla og raðhúsa. Falleg hönnun á einbýlum og fyrsta flokks gæði á samkeppnishæfu verði. Skoðið fasteignaframboðið í Benijófar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum