Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Þessi eign er ekki í boði
REF 862798
Nýr íbúðakjarni, aðeins 150 metra frá ströndinni í Guardamar, bæ sem býr að sjarma týpísks Miðjarðarhafsbæjar og býður uppá mikið úrval af þjónustu.
Í kjarnanum eru mismunandi gerðir af íbúðum: íbúðir á jarðhæð og íbúðir á miðhæðum með 2 eða 3 svefnherbergjum auk þakíbúða með 3 svefnherbergjum og eigin þakverönd. Í öllum eignum eru tvö baðherbergi, opin stofa, nútíma eldhús og verönd. Stórt sameiginlegt svæði er í kjarnanum með görðum, íþróttasvæðum, stórri sundlaug fyrir fullorðna og sérstakri barnalaug. Mögulegt er að festa kaup á bílastæði í kjallara.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Guardamar er einn af helstu ferðamannastöðunum við Suður Costa Blanca, ásamt Orihuela Costa, Torrevieja og Santa Pola.
Guardamar hefur 11 km. langa mishæðótta strönd og þar má njóta átta breiðra, gullinna stranda. Þar á meðal eru nektarströndin Los Tusales og hin fallega Pinada, við hlið hreyfanlegu sandhólana sem liggja meðfram sjávarsíðunni í Guardamar. Fasteignir sem í boði eru í Guardamar eru á breiðu verðbili. Sérstakt úrval er að finna í fasteignum við ströndina, með ótrúlegu sjávarútsýni og fyrsta flokk gæðum. Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Guardamar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum