Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), La Marina
REF 3072404
Nútímaleg hús, aðeins 600 m frá ströndinni í La Marina, sem staðsett er í norðurhluta suður Costa Blanca. Allar daglegar nauðsynjar er að finna í verslanakjarna, sem er skammt frá. Svæðið er fullkomlega staðsett á milli Santa Pola og Guardamar og í aðeins 20 mínútna akstursfjarlægð frá Alicante flugvellinum.
Húsin eru tilbúin til afhendingar og eru hönnuð að hefðbundnum Miðjarðarhafsstíl að utan en með nútímalegri innri hönnun. Til eru tvær gerðir: fjórbýlishús með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Báðar tegundir eru byggðar á tveimur hæðum og samanstanda af rúmgóðri opinni stofu, borðstofu og eldhúsi, en úr alrými er gengið út á stóra verönd. Tvö svefnherbergi og eitt baðherbergi eru á efri hæð, með sér verönd útaf hjónaherberginu . Rúmgóð þakverönd með flísum og gervigrasi er í húsunum. Einbýlishús býður upp á auka svefnherbergi á jarðhæð, sem og einkasundlaug í garðinum.
Öll húsin eru tilbúin fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun, lagnir eru fyrir þvottavél og þurrkara á þakveröndinni og bílastæði á lóð. Íbúar í kjarnanum hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug í öðrum kjarna, rétt hjá, í eigu sama verktaka.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), La Marina
La Marina er vinsæll staður meðal ferðamanna á milli Guardamar og Santa Pola, þar sem eru breiðar strendur, sandhólar og háir pálmar.
Þéttbýliskjarninn hefur viðhaldið töfrum hefðbundnu Miðjarðarhafsþorpanna og framboð fasteigna má finna við jaðar þorpsins, þar sem einbýli og tvíbýli eru ríkjandi. Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í La Marina
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum