Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Campoamor
Þessi eign er ekki í boði
REF 4749805
Húsin eru á einni hæð með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, auk kjallara sem býður upp á fjölmarga möguleika. Þau eru nútímalega hönnuð og eru með bogadregnum línum að utanverðu. Innandyra eru húsin afar rúmgóð og er eldhúsið, stofan og borðstofan í opnu rými. Það rými opnast út á verönd og sundlaugarsvæðið, sem og svefnherbergin 3, en þar sem húsið er L-laga þá er veröndin aðgengileg úr öllum herbergjum. Hjónasvítan er með baðherbergi innaf sem er með tvöföldum vaski. Innangengt er niður í kjallara en möguleiki er að útbúa hann að vild, ef bygginga- og framkvæmdastig leyfir, fyrir aukagjald, s.s. sem íbúð, tómstundaherbergi, bíósal eða líkamsrækt.
Húsin eru byggð úr úrvals byggingarefnum en þeim fylgir loftkæling, innbyggðir fataskápar, einkasundlaug, tengi fyrir sólarsellur á þaki, og einkastæði. Aukalega er í boði að útbúa 66m2 sólstofu, fullbúin garð og/eða gólfhita á baðherbergjum eða í öllu húsinu.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Campoamor
Campoamor hefur að geyma eitt fegursta landslag á allri Orihuela Costa. Hið fullkomna jafnvægi milli stranda og furuskóganna, sem ná allt frá Sierra Escalona til Dehesa de Campoamor, gera að verkum að þetta er hinn fullkomni staður til að finna fasteign nálægt ströndu í náttúrulegu umhverfi.
Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Campoamor
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum