Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 134165
Nýjar eignir í nútímastíl á Orihuela Costa svæðinu. Svæðið hefur upp á mikið úrval þjónustu að bjóða, en þar eru nokkrar verslunarmiðstöðvar, þar á meðal La Zenia Boulevard, sem er ein stærsta verslunarmiðstöð á Spáni. Orihuela Costa býður einnig upp á 5 golfvelli, sjúkrahús og nokkra alþjóðlega skóla.
Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum sem byggð eru á lóðum milli 220 og 350 m2 að stærð. Húsin eru nútímalega hönnuð, frágangur er fyrsta flokks og einkalóð og sundlaug fylgja hverri eign. Gólfhiti er í baðherbergjum, húsin eru klár fyrir uppsetningu á loftkælingu og frágangur á garði er innifalinn í verðinu.
Fyrir hendi er að velja premium týpu af húsunum en þar eru öll 3 svefnherbergin með ensuite baðherbergjum og fataherbergjum og möguleikinn á að hafa sundlaugina með infinity effect eða eins og hún renni fram af bakka er fyrir hendi. Ekki hika við að biðja um nákvæmar upplýsingar um eignirnar og alla möguleika sem í boði eru.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum