Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Miguel de Salinas
Þessi eign er ekki í boði
REF 3069658
Nútímalegt einbýlishús staðsett í íbúðahverfi El Galán, San Miguel de Salinas, við suður Costa Blanca. Frábær staðsetning milli fjögurra golfvalla; Campoamor Golf, Villamartin Golf, Las Ramblas Golf og Las Colinas Golf, aðeins 5 km frá ströndum Orihuela Costa og í 10 mínútna akstursfjarlægð frá Zenia Boulevard verslanamiðstöðinni.
Húsið er á tveimur hæðum og byggt á 390m2 lóð. Það hefur 4 svefnherbergi, 3 baðherbergi, þakverönd og kjallara. Á jarðhæð er rúmgóð stofa ásamt borðstofu og nútímalegu eldhúsi, en alrýmið opnast út á verönd með útsýni yfir sundlaugina. Lítið svefnherbergi og baðherbergi eru ennfremur jarðhæð. Á efri hæð eru hjónaherbergi með en-suite baðherbergi og fataherbergi og önnur 2 svefnherbergi ásamt baðherbergi. Njóta má stórfenglegs sjávarútsýnis frá 90m2 þakverönd hússins. Kjallarinn er stórt fjölnota rými og hann má einnig nota sem bílskúr fyrir allt að tvo bíla. Hægt er að nálgast sundlaugina frá kjallaranum.
Þetta nútímalega einbýlishús hefur verið hannað með gæða efnum og hefur fullbúið eldhús. Húsið er tilbúið fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun, því fylgja húsgögn og einkasundlaug og í húsinu er lyfta sem tengir allar þrjár hæðirnar. Bílastæði er á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Miguel de Salinas
San Miguel de Salinas er spænskur bær við suður Costa Blanca. Bærinn er byggður á hæð og nýtur útsýnis yfir Torrevieja saltvötnin og ótal sítrónu- og appelsínuakra í grenndinni.
San Miguel de Salinas er staðsettur nálægt nokkrum golfvöllum, svo sem Las Colinas og Villamartín og býður íbúum sínum uppá sjarma miðjarðarhafsþorpsins. Njóttu vikumarkaðarins, heimsæktu hellana í bænum og taktu þátt í hátíðum sem haldnar eru reglulega. Allt þetta, ásamt frábæru framboði þjónustu, gerir San Miguel de Salinas að einum af uppáhaldsáfangastöðum þeirra sem eru að leita að heimili í sólinni eða vilja koma í frí við Miðjarðarhafsströndina.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum