Hönnuð einbýlishús við vatnið í hinu fína Santa Rosalía Lake and Life Resort

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

frá 182,221,400 kr
frá 1.214.000€

4

4

199.00 m2

392.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4575458

Nútímalegt einbýlishús, við strendur hins frábæra kristaltæra lóns í Santa Rosalía, við Costa Cálida. Einstakur staður, þróaður í kringum ótrúlegt gervivatn, umkringt strönd, með fjölbreyttri aðstöðu, þar á meðal strandklúbbshúsi, bryggju og fjölbreyttu úrvali íþróttaaðstöðu og tómstunda en þar má nefna minigolf, blak, hjólreiðar og fleira. Los Alcázares, með alla sína þjónustu og frábærar strendur, er aðeins 4 km frá staðnum. Kjarninn er lokaður með 24-tíma öryggisgæslu. Kjörinn staður til að njóta lífsins við Miðjarðarhafið.

Einstök, sérhönnuð einbýlishús, á frábærum stað við vatnsbakkann, með einstöku útsýni. Stöðluð hönnun fyrir þessi tveggja hæða hús hefur 4 svefnherbergi, 4 baðherbergi og kjallara. Á neðri hæð er rúmgóð setustofa, borðstofa og eldhús, ásamt en-suite svefnherbergi og gestasalerni. Stóru gluggarnir í setustofunni opnast út á glæsilega verönd til að njóta frábærs Miðjarðarhafsloftslags, hvenær sem er á árinu. Tvö svefnherbergi og sameiginlegt baðherbergi eru á fyrstu hæð, auk en-suite hjónaherbergis með sér fataherbergi og verönd, með útsýni yfir vatnið. Stór lóðin hefur bílastæði fyrir tvo bíla, garð með einkasundlaug og ytri stiga sem leiðir að inngangi í 150m2 kjallara. Gegn aukakostnaði má sérsníða kjallarann og útbúa þar sjálfstæða íbúð, heimabíó, líkamsræktarstöð, bodega/vínkjallara eða annað sem hugurinn girnist.

Að auki má bæta við útieldhúsi, upphitun í sundlaug, snjallheimakerfi og fleira. Spurðu ráðgjafann þinn um þessa möguleika!

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.

Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.

  • 24 km
  • 21 km
  • 17 km
  • 4 km
  • 29 km
  • 25 km

Nánari upplýsingar um Los Alcázares

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.