Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Manilva
REF 4965107
Nútímalegt einbýlishús á 2 hæðum auk kjallara, með 5 svefnherbergjum og 6 baðherbergjum, byggt á 1.400 m2 lóð. Stórkostlegt útsýni er frá húsinu sem teygir sig frá Marbella til Gíbraltar. Stofan er rúmgóð með opnu skipulagi og eldhúsið er með eyju. Stórir gluggarnir í stofunni opnast út á glæsilega 150 m2 verönd, með tveimur aðskildum íveru svæðum, “infinity” sundlaug og heitum potti. Á hæðinni er tvöfalt svefnherbergi og baðherbergi. Hin herbergin eru á 2. hæð hússins, hvert með eigið baðherbergi og aðgengi út á svalir með stórkostlegu útsýni. Á þessari hæð er inngangurinn í húsið, með yfirbyggða pergólu yfir bílastæðinu. Stór kjallarinn er fjölnota og opnast út í fullbúinn garð. Aukalega er hægt að breyta kjallaranum í íbúð, tómstundaherbergi, bíósal, líkamsrækt, vínkjallara eða hvað sem er.
Húsið verður byggt með úrvals byggingarefnum, ítölskum steini á framhliðum, fullbúinni loftkælingu sem bæði hitar og kælir, og loftræstingu með sólarsellur, Smart Home kerfi, “infinity” sundlaug og heitum potti, fullbúinn garð með innbyggðu vökunarkerfi, geymslu, rafstýrðum hliðum og bílastæði fyrir 2 bíla.
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Manilva
Manilva er ferðamannabær við vestur Costa del Sol, mjög nærri mörkum Cádiz héraðs sem liggur 97 km frá höfuðborg Málaga og 35 km frá Gíbraltar. Frjósemi á svæðinu og landfræðileg staðsetning þess hafði mikið aðdráttarafl fyrir fornar þjóðir sem setjast vildu þar að og gerðu þannig Manilva að byggð allt frá forsögulegum tíma.
Landslagið á svæðinu einkennist af hæðum sem stíga í áföngum upp frá hafinu inní landið og gerir fólki kleift að njóta þess að ferðast bæði um græn svæði og við ströndina. Íbúafjöldi er yfir 15.000 í dag og dreifist um þrjú þéttbýlissvæði; Manilva, Sabinillas og El Castillo auk fjölda íbúðahverfa.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum