Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa
Þessi eign er ekki í boði
REF 4095900
Íbúðir í fyrstu línu við golfvöll í Cala de Mijas, svæði sem er þekkt fyrir stórkostlegar strendur og nokkra af bestu veitingastöðum Costa del Sol. Borgirnar Fuengirola og Marbella eru í aðeins 20 og 30 mínútna fjarlægð með bíl og komast má til Málaga, og flugvallarins á aðeins 35 mínútum. Þar sem þessar borgir eru svo nálægt kjarnanum, er mikið úrval af menningar- og tómstundastarfi í boði, auk þess sem kjarninn er nálægt nokkrum golfvöllum.
Þakíbúð á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum og stórum veröndum, þar sem frábært útsýni yfir golfvöllinn, fjöllin og sjóinn nýtur sín. Meðal annars fylgja eignunum einkasundlaug á þakveröndinni, eldhústæki, loftkæling, bílastæði og geymsla.
Þessi lokaði íbúðakjarni býr að fallegu sameiginlegu svæði með saltvatnslaug og strandsvæði, görðum með staðbundnum plöntum, líkamsrækt með heilsulind og sérstöku hleðslu- og affermingarsvæði fyrir kerrur kylfinga.Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa
La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina.
Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum