Costa Blanca Norður, Marina Alta, Marina Alta Inland
Þessi eign er ekki í boði
REF 1645827
Nýmóðins einbýli í Ibiza stíl í fallegu íbúðahverfi í Orba, sem staðsett er milli borganna Denia og Benissa. Frá húsinu er panorama útsýni yfir hafið og fjöll og furutré einkenna náttúruna í kring. Eignin er byggð á 600 m2 lóð og er á tveimur hæðum. Það hefur 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi og stórt alrými með eldhúsi, borðstofu og setustofu með aðgangi að verönd. Húsinu fylgir einkasundlaug.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Marina Alta Inland
Marina Alta er nyrðsti hluti Costa Blanca strandlengjunnar en Dénia er þar höfuðborg. Þorpin í Marina Alta standa milli fjalla og akra, svo sem víngarða, möndlutrjáa og annarrar ávaxtaræktunar.
Margir litlir bæir á svæðinu bjóða uppá helling af sögu og hefðum, umkringd fjöllunum í rólegum íbúðahverfum sem einkennast af einbýlishúsum með stórum lóðum og sum hver með útsýni yfir hafið. Þetta á við um bæi eins og Jalón, Orba, Alcalali, Pedreguer og marga aðra en þarna má njóta hins einstaka lífsstíls sem Miðjarðarhafsbúar státa sig af. Í Marina Alta er mjög góð þjónusta, svo sem alþjóðlegir skólar og heilsugæsla en þar má nefna mjög gott sjúkrahús í Dénia sjálfri sem dæmi. Þetta svæði Spánar er enn fremur þekkt fyrir að búa að einu heilnæmasta loftslaginu samkvæmt WHO (World Health Organization).
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum