Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea
Þessi eign er ekki í boði
REF 3027553
Lúxus einbýli í nútíma stíl með frábært útsýni yfir sjó í Altea Hills, forréttindastað við Costa Blanca. Nálægt Campo de Golf Don Cayo og nálægt ströndinni og miðbænum með alla nauðsynlega þjónustu.
Húsið er 270 m2 að stærð, auk 190 m2 veranda og er byggt á 1068 m2 lóð. Það er á tveimur hæðum, með sérstakri aðkomu og stæðum fyrir fjórar bifreiðar. Þar er lyfta með aðgangi að hvorri hæð fyrir sig. Á jarðhæð er rúmgóð stofa með fallegum innri garði sem skilur stofuna frá eldhúsinu. Á þessari hæð er ennfremur gestasalerni og glæsilegt hjónaherbergi með baðherbergi og fataherbergi. Stór verönd og fallegt útisvæði er við húsið ásamt sundlaug með svokölluðu infinity effect eða líkt og vatnið falli fram af sjóndeildarhringnum. Stórkostlegt útsýni yfir sjó og fjöll.
Frábær eign sem hönnuð er til að njóta veðursins og náttúrunnar við Miðjarðarhafið.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea
Altea er af mörgum talin fegursta borgin á Costa Blanca.
Gamli miðbærinn með sínum þröngu og bröttu götum, hvítu húsum og sinni víðfrægu bláu kirkjuhvelfingu, gefa staðnum töfrum gætt yfirbragð og sjarma. Bóhemískt andrúmsloftið í Altea hefur dregið að listamenn sem leita eftir fegurð og einstakri birtu við Miðjarðarhafið. Við sjávarröndina í neðri hluta bæjarins er strandgata, höfnin og siglingaklúbbur. Á þessu svæði er að finna úrval nýbygginga, sér í lagi íbúðir mjög nálægt ströndinni. Í 5 km. fjarlægð frá miðbænum er Altea Hills, lúxus íbúðasvæði þar sem finna má fimm stjörnu hótel og golfvöll. Hér er að finna einstakt úrval fasteigna, með áherslu á lúxusíbúðir og einbýli. Skoðið fasteignirnar á ströndinni við Altea.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum