Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Santa Pola, Gran Alacant
Þessi eign er ekki í boði
REF 2151870
Nýr íbúðakjarni í Gran Alacant, aðeins 5 mínútna akstur frá ströndinni. Nálægt öllum daglegum þægindum, og aðeins 30 mínútur frá helstu borgum; Alicante og Elche. Kjarninn er byggður á hæð og allar íbúðir njóta þannig einstaks útsýnis yfir Miðjarðarhafið og sandhólana á ströndinni. N332 þjóðvegurinn tengist svæðinu og gott að ferðast til annarra borga við suður Costa Blanca, eins og Santa Pola, Guardamar og Torrevieja.
Nútíma íbúðir með 2-3 svefnherbergjum og 1-2 baðherbergjum, af mismunandi gerðum. Jarðhæðaríbúðir með verönd eða garði, þakíbúðir með þakverönd og íbúðir á tveimur hæðum með þakverönd. Hver íbúð samanstendur af stofu, borðstofu og nútíma eldhúsi en alrýmið opnast út á veröndina með frábæru útsýni að sjó. Allar íbúðirnar eru með loftkælingu/hitun, gólfhita á baðherbergjum, þvottahúsi og geymslu og bílastæði í kjallara þar sem lagt er fyrir hleðslustað fyrir rafbíla.
Stórt sameiginlegt svæði samanstendur af laug fyrir fullorðna og börn, svæði til afslöppunar, leiksvæði fyrir börn, líkamsræktarstöð, útiþjálfunarbúnaði, grillaðstöðu og bílastæði fyrir reiðhjól.
Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Santa Pola, Gran Alacant
Gran Alacant er samansafn íbúðabyggða sem eru á skaganum Cabo de Santa Pola, á milli lágra fjalla og strandarinnar Carabassí. Þetta er einn vinsælasti búsetuferðaþjónustustaðurinn á Costa Blanca síðust ár.
Sönnun þessara vinsælda er sú staðreynd að þar búa yfir 11 þúsund manns og að öll þjónusta í borginni er opin allt árið um kring, eins og skólar, heilsugæsla, verslanamiðstöðvar, pósthús, bankar og apótek. Borgin hefur því allt sem þarf til að auðvelda líf þeirra sem kjósa þennan fallega stað við Costa Blanca til að eiga heimili. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Gran Alacant
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum