Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Þessi eign er ekki í boði
REF 2096507
Nýr kjarni húsa í spænska þorpinu Benijófar, með öllum nauðsynlegum daglegum þægindum í göngufæri. Aðeins 5 mínútna akstur er að hverfinu Ciudad Quesada, en þar má finna golfvöll og vatnsrennibrautagarð. Fallegar strendur Guardamar og La Mata eru í aðeins 10 mínútna fjarlægð með bíl. Hraðbrautin og þjóðvegur tengja svæðið við mikilvægustu þéttbýli í nágrenninu.
Kjarninn samanstendur af raðhúsum og einbýlishúsum, með 3 svefnherbergjum, kjallara og einkasundlaug. Allar eignir hafa rúmgóða, opna stofu, eldhús og borðstofu, sem opnast út á verönd og sundlaugarsvæði. Á jarðhæð er svefnherbergi og sér baðherbergi. Önnur svefnherbergi og baðherbergi eru staðsett á efri hæð, og þar er einnig stór verönd. Hluta kjallarans sem er hálfkláraður, má breyta eftir kröfum.
Tvöföld lofthæð er í stofu einbýlishúsanna, eldhúsið aðskilið og gestasalerni á jarðhæð. Svefnherbergi á jarðhæð er ensuite.
Öllum eignum fylgir loftkæling/hitun, gólfhiti er á baðherbergjum, eldhústæki fylgja með ásamt sundlaug og bílastæði á lóð. Með einbýlishúsum er bílskúr í kjallara.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Fasteignaúrvalið í Benijófar er mjög fjölbreytt, nægir þar að nefna úrval einbýla og raðhúsa. Falleg hönnun á einbýlum og fyrsta flokks gæði á samkeppnishæfu verði. Skoðið fasteignaframboðið í Benijófar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum