Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 3385611
Nútímaleg einbýlishús nálægt La Mata saltvatninu í Ciudad Quesada. Mjög nálægt ýmsum þægindum eins og verslunum, matvöruverslunum, bönkum, apótekum, alþjóðaskóla og heilsugæslu. Svæðið býður einnig upp á mikið úrval af íþróttastarfsemi, svo sem golf, hjólreiðar og gönguferðir. Og aðeins 10 mínútur tekur að aka að ströndum Guardamar og Torrevieja.
Einbýlishús af tveimur gerðum; hús á einni hæð með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Bæði húsin hafa opna stofu, eldhús og borðstofu og alrýmið opnast útá rúmgóða verönd. Eignirnar hafa þakverönd, þar sem hægt er að njóta sólarinnar og slaka á. Gegn aukakostnaði má koma fyrir sundlaug á lóðinni.
Húsin eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu, gólfhiti er á baðherbergjum, eldhústæki, fataskápar og bílastæði á lóð fylgja.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum