Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 3622958
Einbýlishús við La Marquesa golfvöllinn í bænum Rojales. Allar daglegar nauðsynjar, svo sem stórmarkaðir, verslanir, barir og veitingastaðir, eru í stuttri akstursfjarlægð. Auk golfsins er einnig boðið upp á aðra afþreyingu á svæðinu, eins og tennis-/paddlevelli, fótbolta og gönguleiðir. Aðeins 10 mínútna akstur er að ströndum Guardamar og La Mata. Tilvalin staðsetning fyrir frí eða til búsetu allt árið.
Glæsileg einbýlishús á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, auk kjallara. Neðri hæðin samanstendur af setustofu, borðstofu og eldhúsi og stórar glerhurðar í stofu opnast út á stóra verönd og einkasundlaug. Tvö svefnherbergi og 1 baðherbergi má einnig finna á þessari hæð. En-suite hjónaherbergið er á efri hæð, með aðgangi að stórri 50m2 sólarverönd. Kjallarinn er stórt fjölnota rými (126m2), með þvottaherbergi. Fyrir aukakostnað er hægt að sníða kjallarann eins og krafist er, t.d. sem sér íbúð, með 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúskrók og rúmgóðri stofu.
Stórir gluggar skapa bjart innra rými og hlýir litir prýða framhlið hússins. Eignin er afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu og fataskápar, einkasundlaug, frágenginn garður og bílastæði á lóð fylgja.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum