Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
REF 4443612
Nútímaleg einbýlishús með 4 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, á þremur hæðum. Aðalhæðin býður upp á rúmgóða setustofu, borðstofu og eldhús, með stórum lofthæðarháum gluggum, sem opnast út á stóra, að hluta til yfirbyggða verönd og einkasundlaug. Einnig er gestasalerni og búr á þessari hæð. Öll fyrsta hæðin er hjónaherbergi, með sér baðherbergi, fataherbergi og verönd. Kjallarinn hefur þau 3 svefnherbergi sem eftir eru, sem öll hafa aðgang að lítilli verönd. Í kjallara eru einnig 2 baðherbergi og þaðan er gengið inn í rúmgóðan bílskúr með plássi fyrir tvo bíla, geymslu og þvottahús.
Húsin eru afhent með loftkælingu, innbyggðum eldhústækjum, rafmagns gluggahlerum, fataskápum, einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum