Einbýlishús með 3 svefnherbergjum, þakverönd og stórum garði í Ciudad Quesada

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales

Þessi eign er ekki í boði


3

3

315.97 m2

528.83 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5227258

Glæsileg einbýlishús í vinsælu Ciudad Quesada, íbúðahverfi á milli Guardamar og Torrevieja. Aðeins stuttur akstur er til stórmarkaða, banka, apóteka, heilsugæslu og alþjóðlegs skóla. Svæðið býður upp á margs konar íþrótta- og tómstundastarf, eins og golf, tennis/padel og líkamsræktarstöðvar, sem og vatnagarð og gönguleiðir í La Mata friðlandinu. Sandstrendur Guardamar og La Mata eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð. Svæðið tengist vegakerfinu á afar þægilegan máta en AP7 og N332 vegirnir gera það auðvelt að aka til Orihuela á 15 mínútum, til Santa Pola á 30 mínútum og til alþjóðaflugvallarins í Alicante á 40 mínútum.

Nútímalegt einbýlishús á tveimur hæðum, byggt á 528m2 lóð, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, og þakverönd. Á neðri hæð er gengið inn í forstofu með tvöfaldri lofthæð, sem leiðir inn í stóra setustofu sem er aðskilin frá borðkrók og eldhúsi með skrautlegum arni. Gólfsíðir gluggar í setustofunni og borðkróknum opnast út á yfirbyggða verönd með pergólu og sundlaugarsvæði. Á jarðhæðinni er einnig hjónaherbergi og baðherbergi. Á annarri hæð er svefnherbergi, baðherbergi og hjónasvíta með baðherbergi innaf. Bæði svefnherbergin opnast út á yfirbyggða verönd með útsýni yfir sundlaugina og garðinn. Útisvæðið er með stórri verönd og fallegum garði með afslöppunarsvæði við hliðina á sundlauginni, sem og rúmgóðri þakverönd þar sem hægt er að njóta stórbrotins útsýnis yfir umhverfið.

Einbýlishúsin eru með foruppsetningu fyrir loftkælingu, innbyggðum fataskápum og yfirbyggðu bílastæði fyrir allt að tvo bíla.

Aukakega er hægt að sérsníða einbýlishúsið en það fer eftir byggingarstigi þegar kaup takast. Spyrðu sölumann um möguleikana.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales

Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.

Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada

  • 29 km
  • 19 km
  • 17 km
  • 5 km
  • 11 km
  • 7 km

Nánari upplýsingar um Ciudad Quesada - Rojales

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.