Einstakt einbýlishús með 3 svefnherbergjum, kjallara og þakverönd í La Finca

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca

frá 132,838,500 kr
frá 885.000€

3

2

436.00 m2

310.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5077278

Nýr kjarni innan hins þekkta La  Finca golfvallar á suðurhluta Costa Blanca. Svæðið býður upp á daglega þjónustu, s.s. verslunarkjarna með lítilli búð og veitingastöðum, auk 5* hótels með Spa, klúbbhúsi og það sem mestu skiptir 18 holu golfvelli. Næsti bær er Algorfa sem styður við þjónustuna en þar eru bankar, apótek og heilsugæsla. Hinar fallegu strendur Guardamar del Segura, La Mata og La Marina eru í um 30 mínútna akstursfjarlægð. Hraðbrautin AP7 tengir svæðið við flugvöllinn í Alicante og Murcia sem báðir eru í um klukkustundarfjarlægð.

Kjarninn býður upp á raðhús með 2 svefnherbergjum og einbýlishús með 2 eða 3 svefnherbergjum. Öll húsin eru á 3 hæðum auk þakverandar með útsýni yfir golfvöllinn. Jarðhæðin er rúmgóð með opnu skipulagi en þar er stofan, borðstofan og eldhúsið í einu rými sem opnast út á verönd. Öll herbergin eru á annarri hæð þar á meðal hjónasvíta með baðherbergi inn af. Kjallarinn er með geymslu, tómstundaherbergi og rými sem hægt væri að útbúa auka herbergi í eða líkamsrækt eða hvað sem er. Þakveröndin er aðgengileg annað hvort frá jarðhæð eða frá annarar hæðar verönd, en það er misjafnt eftir húsum hvernig aðgengið er upp á þakveröndina.

Húsunum fylgir tengi fyrir loftkælingu, fataskápar og bílastæði. Aukalega er hægt að fá gólfhita í baðherbergjum, fullgerðan kjallara, fá heitan pott eða bæta við sundlaug.

See more...

  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca

La Finca er afmörkuð íbúabyggð sem teygir sig utan um samnefndan golfvöll, La Finca Golf. Hér er að finna fyrsta flokks þjónustu eins og fimm stjörnu hótel, stórt klúbbhús, golfskóla, íþróttavöll og verslanasvæði með veitingastöðum og annarri þjónustu.

Fasteignirnar við La Finca Golf eiga sameiginlegt rólegt umhverfið og fallegt útsýni yfir dalinn. Í aðeins um 2 km. fjarlægð frá miðbæ Algorfa og allri nauðsynlegri þjónustu, og í 15 mín. fjarlægð frá ströndum Guardamar. Fullkominn staður fyrir þá sem leita eftir fasteign í nálægð við ströndina, langt frá skarkala en þó stutt í allt. Hér má sjá fasteignaframboðið við La Finca Golf.

  • 33 km
  • 19 km
  • 14 km
  • 12 km
  • 13 km
  • 2 km

Nánari upplýsingar um La Finca

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.