Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Þessi eign er ekki í boði
REF 217315
Íbúðir sem staðsettar eru í Pilar de la Horadada, mjög nálægt miðbænum og allri þjónustu sem þar er að finna, en þar má nefna aðstöðu til íþróttaiðkana, matvöruverslanir og fjölbreytt tækifæri til dægradvalar. Aðeins 2,5 km eru að fallegum ströndum Torre de la Horadada og 3 km að golfvellinum Romero Golf.
Velja má milli íbúða á jarðhæð, miðhæð eða efstu hæð með þakverönd. Eignirnar samanstanda af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og opinni stofu/eldhúsi. Allar íbúðir eru með geymslu og eru seldar tilbúnar til innflutnings, með húsgögnum, eldhústækjum og loftkælingu.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum