Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 3038605
Íbúðakjarni í Los Alcazares, minna en 1 km frá Mar Menor og nálægt allri þeirri þjónustu sem þar er í boði, svo sem matvöruverslunum, apótekum, tómstundasvæði, höfninni og fleiru.
Í boði eru mismunandi gerðir eigna; jarðhæðaríbúðir með garði og íbúðir á miðhæð með 2 eða 3 svefnherbergjum. Íbúðir á jarðhæð hafa 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi, sér eldhús og stofu-borðstofu með aðgangi að garðinum. Íbúðir á miðhæð hafa opið eldhús/borðstofu og beinan aðgang frá stofunni út á verönd.
Í kjarnanum eru sameiginlegir garðar og 3 flottar sundlaugar.
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum