Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 1871593
Falleg einbýlishús með einkasundlaug, stórum veröndum og garði, í göngufæri frá ströndum Mar Menor. Staðsett við Costa Cálida, nánar tiltekið í Santiago de la Ribera, þar sem finna má eitthvað fyrir alla; vatnaíþróttir, fallega náttúru og saltvötn ásamt verslunum og tómstundum. Tilvalið fyrir þá sem leita að eign í spænskum bæ.
Húsin eru byggð á lóðum milli 324m2 og 374m2 að stærð og allar eignir eru á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum. Á jarðhæð er stór opin stofa og eldhús, með stórum gluggum, sem gerir rýmið bjart og fallegt. Á sömu hæð er svefnherbergi með sér baðherbergi, gestasalerni og þvottahús, með aðgangi innan frá og utan. Á fyrstu hæð eru tvö stór svefnherbergi, bæði með sér baðherbergi, stórum fataskápum og aðgangi að verönd sem er yfirbyggð að hluta. Tilvalinn staður til að slaka á. Notaleg verönd er á jarðhæð, stór L-laga sundlaug og bílastæði.
Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum