Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 2401635
Nýr kjarni húsa, í innan við 700 m fjarlægð frá ströndinni, í bænum Santiago de la Ribera við Costa Cálida. Ýmis nauðsynleg þjónusta er í göngufæri, og þorpið býður einnig upp á mikið úrval af tómstundum svo sem golf og vatnaíþróttir. Frábær staður til að dvelja árið um kring, við innhafið Mar Menor.
Húsin eru á einni hæð allt að 170m2 kjallara/bílskúr og byggð á lóðum milli 188m2-256m2 að stærð. Öll húsin samanstanda af stórri opinni stofu, borðstofu og eldhúsi ásamt 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum (eitt en-suite). Nútímaleg hönnun, með stórum gluggum, sem gerir eignirnar bjartar og fallegar. Rúmgóð verönd og sundlaugarsvæði, sem og stór þakveröndin eru tilvalin til afslöppunnar og til að njóta lífsstílsins við Miðjarðarhafið.
Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum