Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
REF 4650316
Ný byggð með nútímalegum einbýlum innan golfvallarsvæðis í San Javier, á ströndinni í Murcia. Íbúabyggðin er aðeins í 10 mínútna fjarlægð frá ströndunum í Mar Menor, með ástsælu matsölustöndunum og mikið úrval vatnaíþrótta. Á svæðinu er að finna mikið úrval þjónustu allt árið um kring, matvörubúðir, verslanir, bari og veitingastaði, sem og verslunarkjarnana „Dos Mares“ og Las Velas“, sem eru aðeins í tíu mínútna akstursfjarlægð. Fyrir unnendur útiveru eru allskonar íþróttir og tómstundir í boði auk golfsins, eins og hjólreiðar, gönguleiðir og reiðvöllur. Þökk sé framúrskarandi vegakerfi, eins og N-332 og AP-7, er hægt að komast fljótt á aðra ferðamannastaði, eins og San Pedro de Pinatar á 15 mínútum, til hinnar sögufrægu Cartagena á hálftíma og í miðbæ Murcia á 40 mínútum. Flugvöllurinn í Murcia er í aðeins hálftímafjarlægð og flugvöllurinn í Alicante í klukkutímafjarlægð.
Í boði eru glæsileg einbýli með einkasundlaug, á tveimur hæðum með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Á neðri hæð er opið, rúmgott rými með stofu, borðstofu og eldhúsi og stórum gluggum þaðan sem útgengt er í garðinn. Á þessari hæð er einnig svefnherbergi og sérbaðherbergi. Önnur svefnherbergi eru á efri hæðinni, með sameiginlegu baðherbergi en sér svölum. Stórar svalirnar og sundlaugin eru fullkomnar til að njóta veðurfarsins á Costa Cálida, hér um bil árið um kring.
Á meðal annarra kosta má nefna að allar íbúðirnar eru með fyrirfram uppsettri loftræstingu (kulda/hita) um stokk, rafknúnum gluggatjöldum, tvöföldu gleri, hita í gólfum í baðherbergjum og einkasundlaug.
Það fer eftir staðsetningu hvar bílastæði íbúðanna er, sumar eru með bílastæði innan lóðar en aðrar á sameiginlegu bílastæði.
Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum