Costa Cálida, Mar Menor, Torre Pacheco
Þessi eign er ekki í boði
REF 3667776
Nýr kjarni einbýlishúsa í íbúðahverfi í Roldan, sem tilheyrir Torre Pacheco við Costa Cálida. Bærinn býður upp á öll dagleg þægindi en fjölbreyttara úrval þjónustu má finna í bæjunum Torre Pacheco og Los Alcázares. Nokkrir golfvellir eru á svæðinu, auk vatnaíþróttastarfsemi sem stunda má við Mar Menor, í aðeins 20 mínútna akstursfjarlægð.
Kjarninn samanstendur af einbýlishúsum með 3 svefnherbergjum og 2-3 baðherbergjum, byggð á lóðum á bilinu 241m2 til 300m2. Velja má milli einbýlishúss á einni hæð með þakverönd eða húss á tveimur hæðum með þakverönd. Bæði húsin hafa opna setustofu, borðstofu og eldhús með sér þvottahúsi. Stórar glerhurðar í stofunni opnast út á verönd með garði og einkasundlaug. Öll svefnherbergin eru með en-suite baðherbergi.
Eignirnar eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu, þeim fylgja innbyggðir fataskápar, einkasundlaug og bílastæði á lóð.Costa Cálida, Mar Menor, Torre Pacheco
Torre Pacheco tilheyrir Murcia og liggur skammt frá bænum Los Alcázares við Mar Menor. Svæðið er þekkt fyrir áberandi vindmyllur og úrval golfvalla en bærinn sjálfur býður upp á gott úrval af daglegri þjónustu, börum og veitingastöðum ásamt heilsugæslu og tveimur skólum og er þannig kjörinn kostur fyrir búsetu allt árið um kring.
Þótt um sé að ræða svæði inni í landi eru strendur Mar Menor í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð, þar sem margar vatnaíþróttir eru í boði, svo sem köfun, snorkl og siglingar. Medland býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Torre Pacheco, allt frá íbúðum til einbýlishúsa, sem staðsettar eru nálægt daglegri þjónustu, ýmsum golfvöllum og í stuttri akstursfjarlægð frá ströndinni.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum