Costa Blanca Norður, Marina Alta, Marina Alta Inland
Þessi eign er ekki í boði
REF 258261
Nýr kjarni einbýlishúsa í Tormos, litlum bæ við norður Costa Blanca, sjarmerandi fjallaþorpi í Marina Alta. Tormos er staðsett við fjallsrætur og býður upp fallega náttúru. Aðeins 20 mínútur tekur að aka að ströndinni og klukkutíma akstur er til flugvallarins í Alicante og Valencia. Stærsta verslunarmiðstöð á svæðinu er í 15 mínútna fjarlægð. Í boði eru einbýlishús með 2 svefnherbergjum á einni hæð eða hús með 3 svefnherbergjum á tveimur hæðum. Húsin eru byggð á lóðum frá 400-675 m2 að stærð. Nútímahönnun með opinni stofu og eldhúsi prýðir húsin og þeim fylgir garður, bílastæði og sundlaug. Gera má ýmsar breytingar að eigin vali.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Marina Alta Inland
Marina Alta er nyrðsti hluti Costa Blanca strandlengjunnar en Dénia er þar höfuðborg. Þorpin í Marina Alta standa milli fjalla og akra, svo sem víngarða, möndlutrjáa og annarrar ávaxtaræktunar.
Margir litlir bæir á svæðinu bjóða uppá helling af sögu og hefðum, umkringd fjöllunum í rólegum íbúðahverfum sem einkennast af einbýlishúsum með stórum lóðum og sum hver með útsýni yfir hafið. Þetta á við um bæi eins og Jalón, Orba, Alcalali, Pedreguer og marga aðra en þarna má njóta hins einstaka lífsstíls sem Miðjarðarhafsbúar státa sig af. Í Marina Alta er mjög góð þjónusta, svo sem alþjóðlegir skólar og heilsugæsla en þar má nefna mjög gott sjúkrahús í Dénia sjálfri sem dæmi. Þetta svæði Spánar er enn fremur þekkt fyrir að búa að einu heilnæmasta loftslaginu samkvæmt WHO (World Health Organization).
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum