Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía
Þessi eign er ekki í boði
REF 3039545
Ný hús í Polop, fallegu þorpi sem umkringt er fjöllum, aðeins 15 mínútur frá borginni Benidorm og vel tengt öðrum stærri bæjum og A-7 þjóðveginum. Tilvalinn staður til að njóta friðsældar allt árið um kring en geta sótt þjónustu skammt undan. Tvær tegundir af húsnæði eru íboði, raðhús og einbýli.
Einbýlishúsið er með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og stóru nútíma eldhúsi sem opið er inn í stofu. Rýmið nýtur mikillar birtu þökk sé stórum gluggum. Húsið er byggt á 41.60 m2 lóð og hefur stóran garð og einkasundlaug, auk 29 m2 bílastæðis.
Raðhúsin gefa möguleika á 3 eða 4 svefnherbergjum og hafa 3 baðherbergi, stóra og bjarta stofu og opið nútíma eldhús auk annarrar setustofu á efri hæð. Byggð á 512,65 m2 lóðum, með einkasundlaug og 32,18 m2 bílastæði í stórum garði. Hús með 4 svefnherbergjum koma með kjallara.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía
Polop er lítið þorp í Alicante-héraði í um 20 mín. fjarlægð frá stöndinni og Benidorm.
Fyrir þá sem leita að fasteign á Costa Blanca, á rólegum stað og í náttúrulegu umhverfi, en um leið stutt frá allri þjónustu, er Polop fullkominn kostur. Hér má sjá fasteignir í Polop:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum