Costa Blanca Norður, Marina Baja, Villajoyosa
Þessi eign er ekki í boði
REF 104559
Einstök raðhús í fyrstu línu við strönd í Villajoyosa. Glæsileg staðsetning sem hentar þessum flottu eignum við Costa Blanca fullkomlega. Stór lóð er í kjarnanum með görðum, sundlaugum og beinum aðgangi að ströndinni. Góð tenging er við miðbæinn með almenningssamgöngum sem og við aðrar nærliggjandi borgir eins og Benidorm og Alicante en þangað má taka sporvagn sem stöðvar stutt frá kjarnanum.
Húsin hafa 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi, eru á tveimur hæðum og hverju húsi tilheyrir sér garður og stór verönd. Það fer svo eftir staðsetningu hússins á lóðinni en mörg húsanna njóta glæsilegst útsýnis yfir hafið. Með öllum eignum fylgir bílastæði.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Villajoyosa
Villajoyosa er á milli Alicante og Benidorm og þekkist einnig undir nafninu La Vila.
Borgin er fræg fyrir súkkulaði, márísk og kristin hátíðahöld og, þökk sé góðri staðsetningu, blómstrandi ferðaþjónustu. Þetta er róleg borg sem hefur varðveitt hefðbundna töfra Miðjarðarhafsins, með sínum fræga gamla miðbæ í öllum regnbogans litum, strandgötunni og iðandi höfninni. Við Villajoyosa er að finna 13 víkur og strendur sem umkringdar eru íbúðabyggðum með framúrskarandi fasteignaframboði. Hjá Medlan er að finna lúxushúsnæði við ströndina í Playa Paraíso. Skoðið fasteignirnar við ströndina í Villajoyosa:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum