Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 208750
Kjarni sem samanstendur af 4 einbýlishúsum á besta stað í Ciudad Quesada, mjög nálægt bæ og ströndum Guardamar, í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð.
Húsin eru byggð á lóðum, um 300 m2 að stærð, og eru á einni hæð. Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi eru í húsunum, en annað baðherbergjanna er ensuite.
Öllum eignum fylgir bílastæði, sundlaug og grillaðstaða ásamt því að í garði er vaskur, rafmagn og tengi fyrir sjónvarp. Lóðin er lögð flísum sem lágmarkar viðhald á garðinum.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum