Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Cabo Roig
Þessi eign er ekki í boði
REF 211567
Einbýlishús í Lomas de Cabo Roig, svæði þar sem alla þjónustu má finna í nágrenninu, svo sem strandir og verslunarmiðstöðvar. 2 km frá La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni og La Caleta ströndinni.
Húsin hafa 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi og eru byggð á tveimur hæðum. Jarðhæð er með nútímalegu eldhúsi, sem opnast inní stóra stofu, hátt er til lofts og í stofunni eru stórir gluggar ásamt beinum aðgangi að sundlaugarsvæðinu. Á jarðhæð eru einnig tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi, eitt af þeim en-suite.
Á efri hæð er hjónaherbergi með baðherbergi og stórkostlegu fataherbergi, auk verandar.
Húsunum fylgja aukahlutir, svo sem sjálfvirkt automation kerfi (sem gerir fólki kleyft að fjarstýra ýmsu, svo sem loftkælingu og gluggahlerum), gólfhiti er á baðherbergjum, loftkæling með aerotherm kerfi (með því má stjórna hitastigi í ólíkum herbergjum hússins) og WiFi net fyrir öll húsin í kjarnanum.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Cabo Roig
Cabo Roig er ein af afmörkuðustu byggðunum við Orihuela Costa, og skartar sportbátahöfn, fallegri strönd með gullnum sandi og paradísarvík.
Gott þjónustustig, strendurnar og óviðjafnanlegar samgöngur gera Cabo Roig að einum eftirsóttasta stað þeirra sem leita að fasteignum við ströndina. Fasteignaúrvalið á Cabo Roig er mjög fjölbreytt, og hægt er að finna allt frá íbúðum við sjóinn að frábærum einbýlum og raðhúsum. Hér eru fasteignirnar í Cabo Roig
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum