Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 1494396
Flott einbýli með einkasundlaug í íbúðarhverfi Las Filipinas, Orihuela Costa. Fyrirtaks staður milli þriggja frábærra golfvalla; Campoamor, Villamartin og Las Ramblas og aðeins 5 km frá ströndum Orihuela.
Húsin eru byggð á tveimur hæðum auk kjallara og þakverönd, björt og rúmgóð og úr stofu er beinn aðgangur að lauginni. Nútímalegt eldhús, 3 svefnherbergi, þar af eitt á jarðhæð ásamt baðherbergi. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, annað þeirra með ensuite baðherbergi, ásamt öðru baðherbergi. Nútímalega hannað að utan sem innan.Â
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum