Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 151076
Íbúðakjarni sem staðsettur er í Villamartín þar sem nægt framboð er af all kyns þjónustu. Villamartín golfvöllurinn er rétt hjá, sem og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin auk strandanna í Orihuela Costa.
Í boði eru íbúðir með 2 svefnherbergjum en möguleiki er að skipta upp einu herbergjanna og fá þannig 3 svefnherbergi. Íbúðir á jarðhæð njóta eigin garðs, millihæðir hafa stórar svalir og þakíbúðir hafa þakverönd og fallegt útsýni til hafs. Sameiginleg sundlaug og fallegur garður er í kjarnanum.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum