Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Aguas Nuevas
Þessi eign er ekki í boði
REF 1752
Íbúðahverfi með svokölluðum fjórhúsum eða fjórum eignum í kubb, á friðsælu svæði Aguas Nuevas í Torrevieja. Svæðið er nálægt La Mata ströndinni þar sem öll almenn þjónusta er innan seilingar.
Í kjarnanum eru 14 einingar fjórhúsa en að auki eru íbúðir á neðri eða efri hæð í boði. Stórt sameiginlegt útisvæði tilheyrir húsunum með sundlaug og görðum til afnota fyrir íbúa. Eignirnar eru búnar 3 svefnherbergjum, 2-3 baðherbergjum, rúmgóðum veröndum, eigin garði og eigin bílastæði. Nýtískuleg hönnun. Öll eldhústæki fylgja með í kaupunum; ísskápur, glerhelluborð, háfur, ofn og þvottavél,
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Aguas Nuevas
Á milli strandanna La Mata og Los Locos er að finna Aguas Nuevas, rólega íbúðabyggð sem liggur ofarlega, með stórkostlegu sjávarútsýni á alla kanta.
Í Aguas Nuevas er fjöldi nýrra og áhugaverðra verkefna í bígerð sem munu koma til með að bæta enn við hið fjölbreytta úrval fasteigna við Costa Blanca. Skoðið fasteignaframboðið í Aguas Nuevas.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum