Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Aguas Nuevas
Þessi eign er ekki í boði
REF 246935
Nýr íbúðakjarni í Aguas Nuevas, Torrevieja seme r rólegur staður með góðu framboði þjónustu, svo sem skóla, stórum matvöruverslunum og tómstundaaðstöðu. Hverfið er í nálægð við Habaneras verslunarmiðstöðina og aðeins 2 km frá ströndum La Mata og Playa de Los Locos í Torrevieja.
Í boði eru fjórbýli og íbúðir. Fjórbýlin hafa 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi og eru á tveimur hæðum með garði, þakverönd og bílastæði. Íbúðirnar eru ýmist á jarðhæð með garði eða efri hæð með þakverönd, allar með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og möguleika á að bæta við þriðja svefnherberginu í jarðhæðaríbúðunum. Í kjarnanum eru stórt sameiginlegt svæði með sundlaug og nuddpotti ásamt barnalaug. Bílastæði fyrir eigendur eru inni á afgirtri lóðinni.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Aguas Nuevas
Á milli strandanna La Mata og Los Locos er að finna Aguas Nuevas, rólega íbúðabyggð sem liggur ofarlega, með stórkostlegu sjávarútsýni á alla kanta.
Í Aguas Nuevas er fjöldi nýrra og áhugaverðra verkefna í bígerð sem munu koma til með að bæta enn við hið fjölbreytta úrval fasteigna við Costa Blanca. Skoðið fasteignaframboðið í Aguas Nuevas.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum