Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Los Balcones
Þessi eign er ekki í boði
REF 3528982
Nýr kjarni einbýlishúsa í Los Balcones, vinsælu íbúðahverfi í Torrevieja. Kjarninn er nálægt úrvali af daglegum þægindum, matvöruverslunum, börum og veitingastöðum, bæði í Torrevieja og Orihuela Costa. Stutt er að aka að ýmsum ströndum, og finna má úrval tómstunda skammt undan, svo sem golf-, tennis- og paddlevelli sem og gönguleiðir við Torrevieja saltvatnið. Hin frábæra Zenia Boulevard verslunarmiðstöð, ein sú stærsta á Spáni, er í stuttri akstursfjarlægð og býður upp frábært úrval verslana fyrir fjölskylduna.
Einbýlishúsin eru á einni hæð og byggð á lóðum á bilinu 375m2-500m2, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Í alrými er eldhús, borðkrókur og setustofa sem opnast út á veröndina og garðsvæðið. Stórar glerhurðar í stofu hleypa náttúrulegu ljósi inn og hvert svefnherbergi opnast út í garðinn. Hjónaherbergið er með sér baðherbergi.
Sérsníða má húsin með möguleika á að byggja þakverönd og/eða einkasundlaug, auk annarra aukahluta, gegn aukagjaldi. Húsin hafa foruppsetningu fyrir loftkælingu, gólfhita á baðherbergjum, innbyggða fataskápa, rafdrifna gluggahlera og bílastæði á lóð.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Los Balcones
Los Balcones er ein elsta íbúðabyggð Torrevieja og þjónustan þar er óviðjafnanleg, með fjölda ólíkra verslana, ásamt tómstundum og sjúkrahúsi.
Um er að ræða þéttbýliskjarna inn til landsins, um fjóra km frá ströndu, og samanstendur fasteignaframboðið af íbúðum og raðhúsum en þó sérstaklega einbýlum með stórum görðum. Hér má sjá fasteignaframboðið í Los Balcones:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum