Costa Cálida, Mar Menor, Cartagena Litoral Levante, Mar de Cristal
Þessi eign er ekki í boði
REF 3822533
Nútímalegur íbúðakjarni, innan við 500m frá ströndinni í Mar de Cristal, við Costa Cálida. Daglegar nauðsynjar, svo sem stórmarkaðir, barir og veitingastaðir eru opnir allt árið um kring og staðsettir nálægt kjarnanum. Bærinn hefur upp á margt að bjóða fyrir íþróttaáhugafólk, með íþróttamiðstöð, siglingaklúbbi og smábátahöfn ásamt golfvöllum skammt undan. Fyrir náttúruunnendur eru ýmsar gönguleiðir í fjöllunum á svæðinu og skoða má Flamingo fuglana sem hafa varpstöðvar í nágrenninu.
Nútímalegur og flottur kjarni sem býður upp á íbúðir sem snúa í suður með 2 eða 3 svefnherbergjum, allar með eigin þakverönd. Hægt er að velja um íbúðir á jarðhæð með stórri verönd og lítilli þakverönd á þaki, eða efstu hæð með stórri þakverönd eða 72m2-78m2. Allar íbúðirnar eru með bjartri opinni setustofu, borðstofu og eldhúsi, auk en-suite hjónaherbergis. Eignunum fylgir foruppsetning fyrir loftkælingu, fataskápar, geymsla og sér bílastæði.
Glæsilegt sameiginlegt svæði hefur tvær sundlaugar, garða til að slaka á og bílastæði.Costa Cálida, Mar Menor, Cartagena Litoral Levante, Mar de Cristal
Mar de Cristal tilheyrir Cartagena eins og áður segir. Ströndin þar er þekkt fyrir tært vatnið eins og nafnið gefur til kynna en Cristal þýðir gler.
Ströndin hefur oftast verið heiðruð með Bláa Flagginu af öllum ströndum Murcia. Fyrir frábæra staðsetningu og fyrirtaks veðurfar, er Mar de Cristal álitin standa fremst í flokki, bæði hvað varðar sumarleyfisdvalarstað og þegar kaupa skal fasteign erlendis, nánar tiltekið í Murcia héraði. Þar er framboð þjónustu mjög gott, með veitingastöðum, verslunum, aðstöðu til íþróttaiðkana og öllu öðru sem nauðsynlegt er þegar fólk kemur sér upp heimili á Spáni.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum