Costa Cálida, Mar Menor, La Manga
Þessi eign er ekki í boði
REF 227275
Nýr íbúðakjarni við La Manga Club Resort, glæsilegu svæði til íþróttaiðkana og til að njóta frítímans, umkringt náttúrulegu umhverfi og hafinu sjálfu. La Manga resort býður upp á lúxus, tómstundir og aðstöðu til íþróttaiðkana í mildu loftslagi allt árið um kring. Tilvalinn staður fyrir þá sem leita að rólegheitum, öryggi og næði ásamt fimm stjörnu þjónustu.
Velja má milli þriggja tegunda húsnæðis; íbúða með opnu rými, baðherbergi og verönd, íbúða með eldhúsi, baðherbergi og verönd, íbúða með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, báðum ensuite, aðskildu eldhúsi og stofu með verönd, og að lokum, íbúða með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, öllum ensuite, hálf-sjálfstæðu eldhúsi, bjartri stofu-borðstofu og tveimur veröndum. Í kjarnanum er sameiginleg sundlaug og garðar, auk leiksvæðis fyrir litlu börnin.
Eigendur hafa aðgang að allri aðstöðu við La Manga Club, þar á meðal golfi, f
Costa Cálida, Mar Menor, La Manga
La Manga del Mar Menor er gæðamerki í ferðamennsku við Costa de Murcia. Hvítar sandstrendur, tært hafið og mikið úrval þjónustu og dægradvalar eru gæðastimplar svæðisins.
Þrátt fyrir ferðamennsku og það sem henni tilheyrir má enn finna ósnortin svæði í náttúrunni til að njóta. Sérstakt landslagið, 24 km strengur sem skilur Miðjarðarhafið frá Mar Menor, gerir La Manga að fáum stöðum í heiminum þar sem hægt er að baða sig í tveimur höfum og fylgjast með bæði sólarupprás og sólsetri við sjóndeildarhringinn. Framboðið af fasteignum við þennan sérstaka stað einkennist af eignum með stórkostlegu útsýni yfir hafið og aðeins steinsnar frá ströndinni.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum