Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 3630199
Nýr kjarni einbýlishúsa í Santa Rosalía við Costa Cálida. Svæðið einkennist af kristaltæru lóni þar sem finna má strandklúbb og margvíslega aðstöðu til að njóta útivistar, svo sem minigolf, blak, hjólreiðar o.fl. Bærinn Los Alcázares, er í aðeins 4 km fjarlægð með bíl. Santa Rosalía er þannig kjörinn staður fyrir frí eða fasta búsetu. Öryggiskerfi er á svæðinu.
Nútímaleg tveggja hæða einbýlishús, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, byggð á lóðum milli 210m2 og 321m2. Aðalhæðin er björt og rúmgóð, með opinni setustofu, eldhúsi og borðkrók með tvöfaldri lofthæð. Tvö en-suite svefnherbergi og þvottahús eru enn fremur á þessari hæð. Hægt er að nálgast rúmgóða veröndina og garðinn frá stofunni og einu af svefnherbergjunum. Á efri hæð er hjónaherbergi með sér baðherbergi og fataherbergi, auk tveggja veranda. Gegn aukakostnaði má setja einkasundlaug í garðinn.
Hágæða hönnun er á húsunum og sjálfbærni höfð í fyrirrúmi. Velja má um ýmislegt í frágangi. Loftkæling, fataskápar frá gólfi til lofts, rafmagnsgluggahlerar, fullfrágenginn garður, geymsla, lögn fyrir sólarsellur og bílastæði á lóð þar sem lagt er fyrir hleðslustöð fyrir rafbíl fylgja með í kaupunum.Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum