Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 4226984
Nýr kjarni raðhúsa, í 1 km fjarlægð frá hinum frábæru ströndum Los Alcázares. Þetta svæði við Costa Cálida hefur upp á allt að bjóða, allt frá daglegum þægindum eins og matvöruverslunum, verslunum, kaffihúsum og veitingastöðum, til íþróttaaðstöðu eins og siglinga og köfunar í siglingaklúbbnum, sem og golfs á golfvöllunum La Serena og Roda Golf. Tilvalinn staður fyrir sumarbústað eða til varanlegrar búsetu.
Nútímaleg raðhús á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum ásamt þakverönd. Opið eldhús, borðstofa og stofa eru í húsunum og stórar glerhurðar sem liggja út á yfirbyggða verönd og sundlaugarsvæði. Einnig má finna svefnherbergi og baðherbergi á jarðhæð, auk lokaðs bílskúrs, með þvottaaðstöðu. Hjónaherbergið, með sér baðherbergi og lítilli verönd, er á efri hæð, ásamt þriðja svefnherberginu og baðherbergi og rúmgóðri verönd með sumareldhúsi. Frá þessari verönd er hægt að komast uppá þakverönd sem er 52m2, en þar má njóta sólarinnar allan daginn.
Eignirnar eru byggðar með vönduðum efnum og afhentar með foruppsetningu fyrir loftkælingu, innbyggðum fataskápum, eldhústækjum, sumareldhúsi með foruppsetningu fyrir þvottavél, einkasundlaug með útisturtu og lokuðum bílskúr á lóð.Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum