Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 1710761
Nýr kjarni raðhúsa í bænum Santiago de la Ribera, við Costa Cálida strandlengjuna og Mar Menor. Aðeins 340 metra frá ströndinni og 700 metra frá höfninni þar sem finna má fjölbreytta tómstundaaðstöðu. Húsin eru á tveimur hæðum auk þakverandar og kjallara, allt að 49,20 m2. Þau samanstanda af stórri stofu með stórum gluggum, nútíma eldhúsi með borðkrók, 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Úti er rúmgóð verönd, garður og einkasundlaug.
Eignirnar eru afhentar með eldhústækjum og lagt er fyrir loftkælingu/hitun í stokkum.
Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum