Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 2557321
Nýtískulegar íbúðir með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, nálægt ströndinni í Santiago de la Ribera. Íbúðir á jarðhæð hafa eigin garð og verönd en íbúðir á efri hæð hafa verönd og stóra þakverönd. Eignirnar eru með opinni stofu, borðstofu og eldhúsi og alrýmið er rúmgott. Bílastæði innan kjarnans fylgja öllum eignum.
Í kjarnanum er sameiginleg sundlaug og garðsvæði en kjarninn er staðsettur miðsvæðis og aðeins 1 km frá ströndum, matvöruverslunum, börum og veitingastöðum og hefur fallegt útsýni yfir furuskóg.
Aðalhraðbrautin AP7 er 5 mínútna akstur í burtu og tengir við nýja alþjóðaflugvöllinn í Murcia, rúmlega 30 mínútna akstur.
Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum