Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 3340109
Íbúðakjarni á fínum stað í Santiago de la Ribera, við strönd Murcia. Aðeins 150 metrar eru að göngugötunni, þar sem finna má úrval af börum og veitingastöðum, sem og hina svokölluðu „chiringuito“ (strandbari) meðfram frábærum sandströndum Mar Menor. Önnur þægindi í boði á svæðinu eru matvöruverslanir, bankar og Dos Mares verslunarmiðstöðin, auk ýmissra íþrótta, svo sem golfs, siglinga og hjólreiða. Gott vegakerfi tengir svæðið við aðrar stórar borgir eins og Murcia, Cartagena og Alicante.
Kjarninn samanstendur af íbúðum með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, af tveimur mismunandi gerðum; jarðhæð með garði eða efstu hæð með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með opnu alrými og en-suite hjónaherbergi. Íbúðir á jarðhæð eru með auka garðverönd út af eldhúsinu. Íbúðir á efstu hæð eru með eigin þakverönd, með sjávarútsýni. Sameiginleg svæði hafa stóra sundlaug og garða, auk bílastæða.
Verð og staðsetning eignanna gera þær að kjörnu fjárfestingartækifæri.Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum