Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 4160481
Nútímaleg einbýlishús með einkasundlaug og kjallara í hinu flotta hverfi Santa Rosalía, við Costa Cálida. Hverfið er þróað í kringum ótrúlegt gervi stöðuvatn með kristaltæru vatni, klúbbhúsi, nokkrum ströndum og stóru garðsvæði með aðstöðu til margvíslegrar útivistar, en þar má til dæmis finna minigolf, blak, hjólreiðar og fleira. Los Alcázares er í 4 km fjarlægð og býður upp á fjölbreytta þjónustu og fínar strendur. Santa Rosalía er tilvalinn staður fyrir frí eða varanlega búsetu og býr að 24 tíma öryggisgæslu.
Húsakjarninn samanstendur af nútímalegum tveggja hæða einbýlishúsum, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, auk kjallara með patio-i og 45m2 þakverönd. Kjarninn er staðsettur miðsvæðis á staðnum, nokkrum metrum frá hinu stórkostlega vatni og allri þeirri aðstöðu sem þar er í boði.
Á aðalhæð er rúmgóð stofa með opnu eldhúsi, baðherbergi og hjónaherbergi. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi, bæði með sér baðherbergi. Kjallarinn er stórt, opið og mjög bjart rými, þökk sé ensku patio-i og þar má velja um ýmislegt.
Á útisvæði er sumareldhús, einkasundlaug og yfirbyggt bílastæði.Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum