Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Formentera del Segura
Þessi eign er ekki í boði
REF 3953146
Einstakur kjarni raðhúsa í bænum Formentera del Segura, við suður Costa Blanca. Nálægt kjarnanum má finna úrval daglegra nauðsynja en nágrannabæirnir, Rojales og Quesada, bjóða upp á fjölbreyttari þjónustu, eins og matvöruverslanir, verslanir, bari og veitingastaði, sem og heilsugæslustöð og alþjóðlegan skóla. La Marquesa golfvöllurinn er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð og strendur Guardamar í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð.
Raðhús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, á tveimur hæðum auk þakverandar. Húsin hafa einstaka hönnun, þar sem aðalstofan er aðskild frá eldhúsi og borðstofu en bæði svæðin opnast út á verönd, með sundlaug, framan og aftan við húsin. Samanlögð stærð laugarinnar er 18m! Á efri hæð eru 2 svefnherbergi með sameiginlegu baðherbergi og hjónaherbergi með sér baðherbergi. Þakveröndin er kjörinn staður til að njóta frábærs Miðjarðarhafslífs utandyra og í ró og næði.
Húsin eru hönnuð í Ibiza-stíl, með hlýjum litum og viði. Eignirnar eru afhentar með loftkælingu, eldhústækjum, innbyggðum fataskápum, einkasundlaug(um) og bílastæði á lóð.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Formentera del Segura
Formentera del Segura er dæmigert spænskt þorp í Alicante héraði, sem staðsett er á bökkum Río del Segura. Friðsælt svæði til að njóta náttúrulegs umhverfis en stutt er að aka til helstu ferðamannasvæða, svo sem Guardamar, Torrevieja og Orihuela Costa.
Gott úrval af daglegum þægindum má finna í þorpinu, auk vikulegs útimarkaðar þar sem kaupa má ýmsar afurðir bænda á svæðinu. Glæsilegar strendur Guardamar eru aðeins 10 km í burtu, sem gerir Formentera að kjörnum stað til að njóta hefðbundins spænsks lífsstíls.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum