Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 1486003
Nýr kjarni við Roda Golf, aðeins 3 km frá ströndinni Los Narejos og allri þeirri þjónustu sem Los Alcázares býður upp á. Íbúðahverfi með öllum þægindum, við Mar Menor.
Í boði eru einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, en boðið er uppá ýmsar breytingar, svo sem að bæta við baðherbergi á efri hæð, kjallara og/eða þakverönd. Öll húsin samanstanda af opinni og bjartri stofu og borðstofu, nútíma eldhúsi og verönd. Útisvæðið er með einkasundlaug, bílastæði og stórum garði.
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum