Costa Blanca Norður, Marina Alta, Denia
Þessi eign er ekki í boði
REF 3080614
Húsin eru á einni hæð og byggð á lóðum á bilinu 209m2-387m2, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum auk þakverandar. Rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús er í húsunum en alrýmið er opið og stórar glerhurðar í stofu opnast út á veröndina sem er yfirbyggð að hluta, ásamt garði. Hjónaherbergið er með en-suite baðherbergi, en hin tvö svefnherbergin deila baðherbergi. Utanáliggjandi stigi liggur uppá þakveröndina, þar sem njóta má víðáttumikils útsýnis yfir svæðið.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Denia
Borgin Denia er við norður Costa Blanca og er einn af helstu áfangastöðum ferðalanga við spænsku Miðjarðarhafsströndina. Þar er að finna ótrúlegt framboð á þjónustu og höfn þar sem mikið er um að vera, sérstaklega á sumrin, þökk sé tengingu við vinsælu eyjuna Ibiza.
Í Denia er 20 km. strönd sem skiptist í tvennt. Til norðurs má finna breiðar sandstrendur eins og Almadraba eða Les Deveses. Til suðurs einkenna Les Rotes fjöldi víka, sem flestar eru settar steinum, og göngustígar. Frá því á sjöunda áratugnum hefur Denia verið einn vinsælasti kostur kaupenda og fjárfesta sem kjósa að búa við ströndina og því er fasteignaframboðið mikið, sérstaklega á íbúðum við ströndina. Skoðið fasteignirnar við ströndina í Denia
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum