Costa Blanca Norður, Marina Alta, Denia
Þessi eign er ekki í boði
REF 1729988
Nýr íbúðakjarni, aðeins 500 metra frá ströndinni í Denia. Þessi þekkta borg við norður Costa Blanca býður upp á náttúru, sjó og fjölbreytt úrval þjónustu. Góðar samgöngur eru við helstu borgir á svæðinu, svo sem Benidorm, Jávea og Alicante en Denia er í klukkustundar fjarlægð frá flugvöllunum í Alicante og Valencia. Í boði eru íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Rúmgóð og björt stofa, borðstofa, eldhús og stórkostlegar verandir, en frá mörgum eignum er útsýni að sjónum. Festa má kaup á bílastæði og geymslu í kjallara. Stórir garðar eru í kjarnanum með næturlýsingu, leiksvæði og sundlaug fyrir fullorðna og börn.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Denia
Borgin Denia er við norður Costa Blanca og er einn af helstu áfangastöðum ferðalanga við spænsku Miðjarðarhafsströndina. Þar er að finna ótrúlegt framboð á þjónustu og höfn þar sem mikið er um að vera, sérstaklega á sumrin, þökk sé tengingu við vinsælu eyjuna Ibiza.
Í Denia er 20 km. strönd sem skiptist í tvennt. Til norðurs má finna breiðar sandstrendur eins og Almadraba eða Les Deveses. Til suðurs einkenna Les Rotes fjöldi víka, sem flestar eru settar steinum, og göngustígar. Frá því á sjöunda áratugnum hefur Denia verið einn vinsælasti kostur kaupenda og fjárfesta sem kjósa að búa við ströndina og því er fasteignaframboðið mikið, sérstaklega á íbúðum við ströndina. Skoðið fasteignirnar við ströndina í Denia
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum