Costa Blanca Norður, Marina Alta, Denia
Þessi eign er ekki í boði
REF 3076774
Húsið er staðsett í sveitaþorpinu Pedreguer, skammt frá strandbænum Denia, við norður Costa Blanca. Þorpið býður upp á alla nauðsynlega þjónustu, en fjölbreyttara úrval þjónustu má finna í borginni Denia. Frábærar strendur Denia eru aðeins í 10 mínútna akstursfjarlægð. Fallegur staður umkringdur náttúru og nálægt ströndinni.
Nútímalega hannað einbýlishús á einni hæð, með þakverönd og byggt á 807m2 lóð. Í húsinu er opið alrými, hjónaherbergi með sér baðherbergi og 2 svefnherbergi með sameiginlegu baðherbergi. Stórar glerhurðar í stofu vísa að suðurverönd og sundlaug.
Velja má um ýmislegt í frágangi á húsinu. Loftkæling og hitun er í stofu og hjónaherbergi, gólfhiti er í húsinu. Innbyggðar fataskápar, einkasundlaug, sjálfvirkt hlið með myndavélardyrasíma og bílastæði á lóð fylgja.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Denia
Borgin Denia er við norður Costa Blanca og er einn af helstu áfangastöðum ferðalanga við spænsku Miðjarðarhafsströndina. Þar er að finna ótrúlegt framboð á þjónustu og höfn þar sem mikið er um að vera, sérstaklega á sumrin, þökk sé tengingu við vinsælu eyjuna Ibiza.
Í Denia er 20 km. strönd sem skiptist í tvennt. Til norðurs má finna breiðar sandstrendur eins og Almadraba eða Les Deveses. Til suðurs einkenna Les Rotes fjöldi víka, sem flestar eru settar steinum, og göngustígar. Frá því á sjöunda áratugnum hefur Denia verið einn vinsælasti kostur kaupenda og fjárfesta sem kjósa að búa við ströndina og því er fasteignaframboðið mikið, sérstaklega á íbúðum við ströndina. Skoðið fasteignirnar við ströndina í Denia
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum