Íbúð á jarðhæð með rúmgóðri verönd í Jávea

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Jávea

frá 51,199,695 kr
frá 340.650€

2

2

97.29 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5766071

Sérstakur íbúðakjarni, rúmlega 1 km frá ströndinni í Jávea, á norðurströnd Costa Blanca. Jávea er talinn einn mikilvægasti ferðamannastaðurinn við Miðjarðarhafsströndina og býður upp á alla þjónustu og þægindi stórborgar, eins og stórar matvörubúðir, skóla, sjúkrahús og heilsugæslustöðvar, auk fjölbreyttrar afþreyingar  og fjölda veitingastaða. Svæðið er tilvalið fyrir útivistarfólk, golfvöllur er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð, fallegar gönguleiðir og fjölmargar vatnaíþróttir á stórkostlegum ströndum og víkum. Gott vegakerfið tengir svæðið við önnur ferðamannasvæði á Costa Blanca, eins og Denia á 25 mínútum, Calpe á 40 mínútum eða Benidorm á 45 mínútum. Alicante alþjóðaflugvöllurinn er í rúmlega klukkutíma akstursfjarlægð frá kjarnanum.

Í verkefninu eru íbúðir með 2 og 3 svefnherbergjum, fáanlegar í ýmsum gerðum: jarðhæð og miðhæð með verönd og þakíbúðir á tveimur hæðum með verönd. Allar íbúðirnar eru með opinni stofu sem sameinar eldhús, borðstofu og setustofu í einu opnu rými með stórum gluggum sem opnast út á verönd. Hjónaherbergið er með sérbaðherbergi og, í sumum íbúðunum er einnig aðgangur að verönd. Sumar þakíbúðirnar njóta einnig sjávarútsýnis.

Íbúðirnar eru með loftræstikerfi (heitt/kalt), fullbúið baðherbergi, lýsingu og rafmagnstengi á veröndum, geymslu og bílastæði. Það fer eftir byggingarstigi, en það er hægt að velja lit og efni á innrétttingar. Það er líka mögulegt, gegn aukakostnaði, að fá ýmsar auka uppfærslur, eins og að setja upp einkasundlaug á verönd sumra þakíbúðanna.

Kjarninn inniheldur mörg sameingarsvæði þar sem hægt er að njóta Miðjarðarhafsloftslagsins, þar á meðal stóra sundlaug og slökunarsvæði, salerni, stóra garða, göngustíga, líkamsræktarstöð, samfélagsherbergi og stæði fyrir hjól. Kjarninn er fullkomlega aðgengilegur fyrir hreyfihamlaða og með skábrautum fyrir hreyfihamlaða.

See more...

  • verönd
  • bílageymsla í kjallara
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Jávea

Jávea er eitt af afmörkuðustu svæðunum við norður Costa Blanca. Fegurð landsins felst í fullkomnu jafnvægi hafs og fjalla, sem hefur orðið til þess að staðurinn er einn sá eftirsóttasti á meðal efnaðra kaupenda.

Þjónustustig og fasteignaframboð í Jávea er einstaklega gott. Einbýlin sem hafa stórkostlegt sjávarútsýni eru meðal eftirsóttari fasteigna á svæðinu, þó einnig megi finna hér gott úrval íbúða og raðhúsa í þéttbýli. Skoðið fasteignirnar við ströndina í Jávea

  • 100 km
  • 76 km
  • 76 km
  • 1 km
  • 74 km
  • 38 km

Nánari upplýsingar um Jávea

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.